Flýtilyklar
Nýjustu fréttir
-
Nýtt starfsár hafið
Hymnodia hefur nú tekið til starfa eftir sumarleyfi og á dagskránni eru spennandi verkefni að venju. Fyrstu æfingar haustsins hafa farið í að læra tónlistina í óperunni Dido og Aeneas eftir Henry Purcell sem flutt verður í Hofi 1. apríl 2012. Félagar úr kórnum sjá um einsöngs- og samsöngshlutverk í óperunni og allur kórinn tekur þátt í túlkun og sviðsetningu verksins. Einnig eru í undirbúningi jólatónleikar í samvinnu við ungkvennakórinn Ísold. Þeir verða haldnir í Akureyrarkirkju 22. desember. Hymnodia hyggst líka halda nokkra smærri tónleika í vetur sem auglýstir verða með skömmum fyrirvara og einnig er í undirbúningi plötuupptaka sem þó er ekki ákveðið hvenær verður af. Vonandi verður það á vordögum og vonandi verður hægt að taka plötuna upp í verksmiðjunni gömlu á Hjalteyri þar sem er einstakur og óvenjulegur hljómur. Myndin hér fyrir neðan er af tónleikum í Hafnarborg í febrúar 2011 þar sem Stjórnarskrá Íslenska lýðveldisins var flutt fyrir fullu húsi áheyrenda.

-
-
Hymnodia í sumarfrí
Þá er Kirkjulistavika í Akureyrarkirkju að baki og enn eitt starfsárið liðið í sögu Hymnodiu. Nú tekur kórinn sér
frí fram eftir sumri en byrjar nýtt starfsár á tónleikum á tónlistarhátíðinni Berjadögum í Ólafsfirði um
miðjan ágúst. Í millitíðinni taka félagar úr Hymnodiu þátt í
Barokkhátíð 2011 á Hólum í Hjaltadal dagana 23.-26. júní og ef til vill verða einhver okkar á Miðaldadögum á
Gásum upp úr miðjum júlí. Það er þó óráðið þegar þetta er skrifað um miðjan maí. Á
næsta starfsári verður vonandi tekin upp plata með jólatónlist og meiningin er að taka fyrir eitt af stórvirkjum barokktímans á nýju
ári. Það verður spennandi verkefni og væntanlega verður það flutt í Hamraborg, stóra salnum í Hofi en allt skýrist þetta
betur með haustinu. Hymnodia þakkar stuðningsfólki sínu og velunnurum fyrir veturinn og óskar þeim gleðilegs sumars!
-
- Miðnæturtónleikar á föstudaginn langa
Hymnodia minnir á árlega miðnæturtónleika sína á föstudaginn langa klukkan
hálfellefu í Akureyrarkirkju. Í þetta sinn verður söngurinn að mestu án undirleiks en stjórnandinn, Eyþór Ingi Jónsson,
grípur aðeins í orgel í einu eða tveimur verkum. Flutt verður áhrifarík föstutónlist eftir íslensk og erlend tónskáld,
Önnu Þorvaldsdóttur, Árna Harðarson, Tryggva M. Baldvinsson, Marc-Antoine Charpentier og fleiri. Sérstaklega má nefna að kórinn flytur hið
undursamlega sautjándu aldar verk Miserere mei, Deus eftir Allegri sem ekki mátti fara með út fyrir páfagarð á sínum tíma.
Mozart heyrði verkið í sistínsku kapellunni fjórtán ára gamall og skrifaði það upp sama dag eftir minni. Einnig verður sálmur
Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, Á föstudaginn langa, fluttur í heild sinni, öll erindin átta við lag
Guðrúnar Böðvarsdóttur.Miðasala verður við innganginn. Troðfullt var á þessa tónleika í fyrra og margir bíða spenntir eftir þessum viðburði.
-
- Troðfullt hús í Hafnarborg
Stjórnarskráin
slær í gegnÁ fjórða hundrað manns sótti tónleikana í Hafnarborg 12. febrúar þar sem Stjórnarskráin var flutt og þurftu margir að standa. Frábær stemmning var í salnum og fengu flytjendur frábær viðbrögð áheyrenda að tónleikunum loknum. Á eftir var sýnt á stóru tjaldi myndband Ólafs Ólafssonar og Libiu Castro sem gert var í samvinnu við Sjónvarpið. Myndin verður sýnd í Sjónvarpinu 16. febrúar kl. 22.15 og aftur sunnudaginn 20. febrúar kl. 13.50.
Lesa meira
Heimsóknir
Samtals: 4768



